Forsíða
Ferðaþjónusta
Horfin býli
Kveðskapur
Kaldalóns
Steinn Steinarr
Rafvæðing
Spánverjavígin
Skólahald
Undir Snjáfjöllum
English

Snæfjallaströnd. Ljósmynd: Mats Wibe Lund



Aðalfundur Snjáfjallaseturs

Boðað er til aðalfundar Snjáfjallaseturs miðvikudagskvöldið 28. október kl 20 í ReykjavíkurAkademíunni, Hringbraut 121, 4. hæð, fundarherbergi í austurálmu

Venjuleg aðalfundarstörf

Stjórnin


Ferðaþjónustan Dalbæ:

Ferðaþjónustan Dalbæ opnar á ný næsta sumar.

Áslaug Jóhannsdóttir og Sigurður Sigurðsson sjá um ferðaþjónustuna í Dalbæ

Gsm 8989 300

thruman@simnet.is


Útgáfur Snjáfjallaseturs 2009

Dagana 15. ágúst til 5. september var opin sýningin Skólahald í Snæfjalla- og Grunnavíkurhreppum hinum fornu í húsakynnum heimangönguskólans sem var á Lyngholti á Snæfjallaströnd á árunum 1936-1947. Gefinn var út ritlingur af þessu tilefni sem fylgir sýningunni úr hlaði og kostar hann kr. 500 en kr. 400 til félagsmanna.

Snjáfjallasetur hefur einnig gefið út geisladisk sem ber heitið Heyrði ég í hamrinum, en þar heyrast raddir fyrrum ábúenda á Ströndinni sem kveða og segja frá ýmsum þjóðlegum fróðleik. Upptökurnar voru gerðar af Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum á sjöunda og áttunda áratug síðustu aldar. Geisladiskurinn kostar kr. 2000, en kr. 1.600 til félagsmanna.

Einnig er komin út í kilju bókin Híbýli og húsbændur á Snæfjallaströnd 1930-1940, sem er endurbætt sérprentun á byggðasöguhluta bókarinnar Undir Snjáfjöllum - þættir um búsetu og mannlíf á Snæfjallaströnd eftir Engilbert S. Ingvarsson, með fjölda mynda sem hvergi hafa birst áður af ábúendum, býlum, atvinnuháttum o.fl. á Ströndinni. Bókin kostar kr. 2000, en kr. 1.600 til félagsmanna.

Félagsmenn fá allar útgáfur Snjáfjallaseturs með 20% afslætti. Miðað er við að eitt eintak af hverri útgáfu sé með þeim afslætti en einnig býðst magnafsláttur.. Nánari upplýsingar veitir framkvæmdastjóri í síma 6987533.


Snjáfjallasetur

Snjáfjallasetur var stofnað í Dalbæ á Snæfjallaströnd sumarið 2003. Setrinu er ætlað að safna, skrá og varðveita sagnir, kveðskap, myndir, muni og ýmis gögn sem tengjast sögu byggðar í Snæfjalla- og Grunnavíkurhreppum og standa að sýningahaldi, útgáfustarfsemi, vefgagnasafni og ýmsum viðburðum.

Í stjórn setursins eru: Engilbert Ingvarsson, formaður; Hannibal Helgason, varaformaður og forstöðumaður sýninga og Páll Jóhannesson, meðstjórnandi. Ólafur J. Engilbertsson er framkvæmdastjóri Snjáfjallaseturs. Átthagafélag Snæfjallahrepps á aðild að Snjáfjallasetri. Miðstöð starfseminnar er í Dalbæ á Snæfjallaströnd.

Byggðasögusýningin Horfin býli og huldar vættir í Snæfjalla- og Grunnavíkurhreppum hinum fornu, sem opnuð var sumarið 2002, er grunnsýning setursins. Fyrsta verk Snjáfjallaseturs var að gefa út rit tengt sýningunni á íslensku og ensku, en þar er fjallað um elstu heimildir um ábúendur í Snæfjalla- og Grunnavíkurhreppum hinum fornu, um þróun byggðarinnar, mannlíf og sagnir af draugum, huldufólki og ýmsum átrúnaði og upplýsingar um síðustu ábúendur á svæðinu. Á sýningunni Horfin býli og huldar vættir er einnig hægt að hlusta á upptökur úr segulbandasafni Stofnunar Árna Masgnússonar á kveðskap fólks úr Snæfjalla- og Grunnavíkurhreppum.

Önnur verkefni Snjáfjallaseturs frá stofnun eru m.a. sýningin Kaldalón og Kaldalóns, um tengsl tónskáldsins Sigvalda Kaldalóns við norðanvert Ísafjarðardjúp og ferðir yfir Drangajökul. Kammerkórinn á Ísafirði hélt tónleika við opnun sýningarinnar sumarið 2004. Sumarið 2007 var sýningin á Hólmavík. Einnig má nefna útgáfu ritsins Krafturinn í ánni - Snæfjallaveita og rafvæðing Inndjúps eftir Helga M. Sigurðsson, sagnfræðing, en sýning um rafvæðinguna í Inndjúpi var jafnframt opnuð í Dalbæ sumarið 2005. Sumarið 2006 var málþing og sýning um Spánverjavígin 1615 og um margvísleg samskipti Íslendinga og Baska á þeim tíma. Sýningin var á Hólmavík sumarið 2007 í samstarfi við Strandagaldur. Sumarið 2007 var sýning í Dalbæ um skólahald í Snæfjalla- og Grunnavíkurhreppum hinum fornu í tilefni af 100 ára afmæli fræðslulaga og málþing í tengslum við sýninguna í Dalbæ. Ólöf Garðarsdóttir flutti erindi um barnaskóla á millistríðsárunum í ljósi kynferðis og stétta, þéttbýlis og dreifbýlis; Loftur Guttormsson var með erindi um viðbrögð Grunnvíkinga við fræðsluskyldunni 1907 og Engilbert Ingvarsson með erindi um skólahald í Snæfjallahreppi.


Varðveitum rímnaarfinn!

Við opnun byggðasögusýningarinnar Horfin býli og huldar vættir á Snæfjallaströnd þann 22. júní 2002 var haldin rímnahátíð sem ætlað er að vera vísir að áframhaldandi viðburðum af svipuðu tagi og söfnun rímna og sagna á fræðasetri sem áætlað er að koma upp í Dalbæ á Snæfjallaströnd og á Netinu. Hugmyndin er sú að skrá efnið inn og koma upp gagnabanka um rímur og sagnir um huldar vættir á norðanverðum Vestfjörðum. Þeir sem luma á rímum og sögnum af draugum og huldufólki frá Ströndum, Jökulfjörðum og Ísafjarðardjúpi eru vinsamlegast beðnir að senda þær eða upplýsingar á netfangið snjafjallasetur@snjafjallasetur.is


Sendið póst