Forsíða
Ferðaþjónusta
Horfin býli
Kveðskapur
Kaldalóns
Steinn Steinarr
Rafvæðing
Spánverjavígin
Skólahald
Drangajökull
Undir Snjáfjöllum
Um Snjáfjallasetur
English

9. Hlíðarhús

Við Innra-Skarðsá, eða Skarká, eru tóftir bæjarins á Hlíðarhúsum. Í Jarðabókinni er greint frá tóftum annars bæjar, Garða, og er sagt að munnmæli hermi að þar hafi verið kirkja og séu þar skammt frá svokallaðir Kirkjusteinar og Kirkjutungur. Talið er að snjóflóð hafi tekið þann bæ sem þarna var, sem hefur verið innar en Hlíðarhúsabærinn. Þar gengur í sjó fram svokölluð Garðabryggja.

Innra-Skarðsá fellur fram af hömrum ofan við bæinn og er þar Möngufoss sem kenndur er við Galdra-Möngu, sem mun hafa verið Margrét Þórðardóttir, prestsfrú á Snæfjöllum, er var sýknuð af göldrum á Þingvöllum 1662 og bjó síðustu æviárin á Lónseyri. Á Hlíðarhúsum bjuggu síðast Egill Jónsson og Guðrún Þórðardóttir. Þau Guðrún og Egill fluttu í Arnardal sumarið 1932, síðar á Kambsnes og loks til Súðavíkur.. Öll hús voru orðin léleg á Hlíðarhúsum árið 1932. Þarna var torfbær með einu risi og stóð húsið nokkru fyrir innan ána, rétt fyrir neðan brúna. Áður fyrr, og fram yfir aldamót, voru þrír til fjórir bæir eða tómthús á Hlíðarhúsum, en enginn bjó þar eftir þetta. Æðeyjarbræður heyjuðu nokkur sumur á Hlíðarhúsum eftir að búskapur lagðist þar af, enda tilheyra Hlíðarhúsin Æðeyjareigninni.

Smellið á myndirnar til að stækka þær

Fjölskyldan á Hlíðarhúsum árið 1929 fyrir utan bæinn. Egill Jónsson og Guðrún Þórðardóttir ásamt börnum sínum. Frá vinstri; Bjarni; Egill Jónsson situr undir Ásgrími; Jón; Guðrún Þórðardóttir situr undir Guðmundi og Guðrún lengst til hægri. Myndina tók danskur ljósmyndari. Úr fórum Bjarna Egilssonar Fjölskyldan frá Hlíðarhúsum um 1950 Egill Jónsson Guðrún Þórðardóttir Hlíðarhúsabærinn að hruni kominn um 1950


Til baka


Sendið póst