Forsíða
Ferðaþjónusta
Horfin býli
Kveðskapur
Kaldalóns
Steinn Steinarr
Rafvæðing
Spánverjavígin
Skólahald
Drangajökull
Undir Snjáfjöllum
Um Snjáfjallasetur
English

3. Ásgarður / Dalbær

Í landi Bæja reisti Ungmennafélagið Ísafold, sem stofnað var 1936, samkomuhúsið Ásgarð og var það vígt árið 1940. Húsið var byggt úr rekavið af Ströndum og var með tveimur torfveggjum. Nú, áríð 2006, stendur aðeins strompurinn eftir, en nýtt samkomuhús var reist við hliðina árið 1973 og nefnt Dalbær.

Á sjávarkambinum fyrir neðan Unaðsdal var á þriðja og fjórða áratugnum skúr sem Helgi Guðmundsson gaf ungmennafélaginu Framför og voru þar færðir upp leikþættir, dansað og sungið. Ingvar Ásgeirsson innréttaði skúrinn sem var rifinn þegar hann var orðinn lélegur og ónothæfur á fjórða áratugnum. Samkomuhúsið Ásgarður var reist nokkru síðar og kom þangað um árabil fólk víða að á dansleiki, m.a. gangandi úr Jökulfjörðum.

Smellið á myndirnar til að stækka þær

Ásgarður Tjöld Jökulfirðinga við Ásgarð Fyrsta flugvélin lendir á Snæfjallaströnd Kjartan Halldórsson og Lilja Helgadóttir á sviðinu í Dalbæ
Fyrsta flugvélin lendir á Snæfjallaströnd Fyrsta flugvélin lendir á Snæfjallaströnd Systkinin í Unaðsdal á sviðinu í Dalbæ um 1990 Auglýsing um Norrænt mót - Þorrablót frá um 1937


Til baka


Sendið póst